Umsagnir
3.2.2009
Tímamót - Sérstakir samningar Vinnumálastofnunar
Nýlega var tilkynnt um að Vinnumálastofnun verði heimilt að gera sérstakan samning við frjáls félagasamtök um að atvinnuleitandi taki þátt í sjálfboðaliðastarfi enda um að ræða vinnumarkaðsúrræði skv. b-lið 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Almannaheill fagnar þessu mikilvæga framtaki.
14.10.2008
Ályktun frá Samtökunum almannaheill
"Samtökin almannaheill vilja, í ljósi atburða síðustu daga, minna á það mikilvæga hlutverk sem íslensk almannaheillasamtök gegna í glímu við erfið áföll sem samfélag okkar verður fyrir.
Samtökin almannaheill hvetja nú öll íslensk almannaheillasamtök, á hvaða sviði þjóðlífsins sem þau starfa, til að leggja sig fram nú sem endranær við að liðsinna fólki sem glímir við vandamál vegna þeirrar fjármálakreppu sem ríður yfir þjóðina."






