Beint á leiðarkerfi vefsins
almannaheill - heim

Almannaheill - samtök þriðja geirans

Almannaheill - samtök þriðja geirans eru samstarfsvettvangur félaga og sjálfseignarstofnana sem vinna að almannaheill á Íslandi. Samtökin voru stofnuð sumarið 2008 til að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum frjálsra félagasamtaka sem starfa í almannaþágu, jafnframt að vera málsvari þeirra gagnvart opinberum aðilum og fjölmiðlum. Þá ætla samtökin að vinna að því að heildarlöggjöf verði sett um starfsemi frjálsra félagasamtaka, að skattaleg staða þeirra verði bætt, og að sýnileiki þriðja geirans í þjóðfélaginu verði aukinn. Sjá nánar

Viðburðir

Þátttaka

Aðilar að Almannaheill eru samtök sem starfa í almannaþágu. Þau starfa af heilindum, hafa lýðræðislega stjórnunarhætti, skipulagsskrá og skila endurskoðuðum ársreikningum.

Sækja um aðild

Hver er hver

Jónas Guðmundsson

Jónas situr í stjórn Almannaheilla. Jónast er hagfræðingur að mennt. Hann vann að rannsóknarverkefnum um frjáls félagasamtök sem Fulbright Visiting Scholar við George Washington University 1999 til 2001. Hann á sæti í stjórn og framkvæmdastjórn Neytendasamtakanna.


3.2.2009

Tímamót - Sérstakir samningar Vinnumálastofnunar

Nýlega var tilkynnt um að Vinnumálastofnun verði heimilt að gera sérstakan samning við frjáls félagasamtök...

14.10.2008

Ályktun frá Samtökunum almannaheill

"Samtökin almannaheill vilja, í ljósi atburða síðustu daga, minna á það mikilvæga hlutverk sem íslensk...

Toppmynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta