Fréttir
29.3.2010
ÞRIÐJI GEIRINN SIÐLEGIR STARFSHÆTTIR OG ÁBYRGÐ STJÓRNA ALMANNAHEILLASAMTAKA
Opin hádegismálstofa á vegum Háskólans í Reykjavík og Almannaheilla, samtaka þriðja geirans.
Stund: Miðvikudagur 7. apríl kl. 12:00 - 13:15
Staður: Aðalbygging HR í Nauthólsvík, Fönix 3
ÁVARP
Ragna Árnadóttir, dómsmála- og mannréttindaráðherra
SIÐLEGIR STARFSHÆTTIR OG SETNING SIÐAREGLNA
Stefán Einar Stefánsson, siðfræðingur við lagadeild HR
Í fyrirlestrinum verður fjallað um hvað felst í siðlegum starfsháttum, hvaða
kröfur er eðlilegt að gerðar séu og hverju siðareglur skipta.
ÁBYRGÐ STJÓRNENDA OG STJÓRNARMANNA Í ALMANNAHEILLASAMTÖKUM
Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs HR
Í erindinu verður fjallað um þá ábyrgð sem hvílir á stjórnarmönnum og
stjórnendum almannaheillasamtaka.
DRÖG AÐ SIÐAREGLUM ALMANNAHEILLA KYNNT, FYRIRSPURNIR OG UMRÆÐUR
Fundarstjóri er Guðrún Agnarsdóttir, formaður Almannaheilla
Allir velkomnir! Skráning á www.hr.is (einnig má senda póst á evath@ru.is)






