Fréttir
3.12.2009
Stefán Konráđsson hlaut Laurel heiđursviđurkenningu
30.11.2009
Fullt var út úr dyrum í málstofu um ţriđja geirann a tímum endurreisnar
24.11.2009
Hádegismálsstofa; Ţriđji geirinn á tímum endurreisnar
Ţriðji geirinn á tímum endurreisnar: Lýðræði, félagsauður, betra velferðarkerfi og nýsköpun þess?
Föstudaginn 27. nóvember kl. 12-13.15 Háskólatorg 101
Skráning: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is/page/thridjigeirinn
9.10.2009
Almannaheill ályktar
Almannaheillasamtök eru eðlilegir bandamenn hins opinbera. Íslensk almannaheillasamtök hafa ekki látið sitt eftir liggja í glímunni við afleiðingar efnahagskreppu þjóðarinnar. Þau hafa létt undir með einstaklingum og hópum sem orðið hafa fyrir barðinu á fylgifiskum kreppunnar með ýmsum hætti, t.d. vinnu sjálfboðaliða og fjárhagslegum stuðningi, sem oftast er fenginn beint frá almenningi. Þau hafa einnig skapað ný úrræði, hlaupið undir bagga með opinberum aðilum og jafnvel tekið að sér verkefni og mikilvæga þjónustu sem ríki og sveitarfélög sjá sér ekki lengur fært að sinna.
9.10.2009
Gunnar E. Kvaran fjallar um almannatengsl
Gunnar E. Kvaran frá almannatengslafyrirtækinu Athygli kom á fund Almannaheilla í gær og ræddi um leiðir og aðferðir almannaheillasamtaka til að nálgast og ná athygli fjölmiðla. Fulltrúm allra aðildarsamtaka Almannaheilla var boðið að sækja fundinn og var gerður góður rómur að máli Gunnars.
1.10.2009
Fyrirlestur um lagaumhverfi félagasamtaka
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
11.8.2009
Samningur viđ Opna háskólann
Stjórnum og starfsfólki aðildarsamtaka Almannaheilla býðst 20% afsláttur af öllum námskeiðum Opna háskólans í Háskólanum í Reykjavík. Vinsamlegast tilgreinið við skráningu aðild að Almannaheillum.
Afslátturinn er veittur sem stuðningur við það mikilvæga starf sem samtökin sinna í samfélaginu.
Smellið hér til að kynna ykkur næstu námskeið Opna háskólans
21.5.2009
Vel sóttur ađalfundur Almannaheilla 2009
Aðalfundur Almannaheilla var haldinn 19. maí sl., kl. 15-17:00 í húsakynnum Krabbamainsfélags Íslands við Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Fundurinn var mjög vel sóttur og mikil samstaða meðal fundarmanna.
3.2.2009
Tímamót - Sérstakir samningar Vinnumálastofnunar
Nýlega var tilkynnt um að Vinnumálastofnun verði heimilt að gera sérstakan samning við frjáls félagasamtök um að atvinnuleitandi taki þátt í sjálfboðaliðastarfi enda um að ræða vinnumarkaðsúrræði skv. b-lið 12. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Almannaheill fagnar þessu mikilvæga framtaki.
4.1.2009
bjartsyni.is
Almannaheill er aðili að verkefninu bjartsyni.is, en markmiðið með vefnum er að koma á framfæri jákvæðum sögum, hugmyndum og ábendingum úr íslensku samfélagi. Í þeim fjárhagslegu erfiðleikum sem nú steðja að þjóðinni er mikilvægt að gleyma ekki því sem gengur vel, enda getur góður árangur eins orðið öðrum hvatning eða fyrirmynd.
Landsmenn eru hvattir að senda inn góðar sögur.






