Beint á leiðarkerfi vefsins
almannaheill - heim

Lög samtakanna

 

Lög Almannaheilla - samtaka þriðja geiransf

1. gr.

Samtökin eru samstarfsvettvangur félaga og sjálfseignarstofnana sem vinna að almannaheill (Public Benefit Organizations) á Íslandi.

2. gr.

Samtökunum er ætlað:

1. Að vinna að sameiginlegum hagsmunamálum fyrir almannaheillasamtök og sjálfseignarstofnanir sem starfa í almannaþágu, skapa þessum aðilum hagfellt starfsumhverfi, styrkja ímynd þeirra og efla stöðu þeirra í samfélaginu.

2. Að vera málsvari almannaheillasamtaka gagnvart opinberum aðilum og samfélaginu, stuðla að umræðu um hagsmunamál meðal almannaheillasamtaka og á opinberum vettvangi, og þrýsta á aðgerðir stjórnvalda í málefnum þeirra.

3. gr.

Almannaheill - samtök þriðja geirans munu leggja sérstaka áherslu á þrjú verkefni:

Skattaumhverfi: Vinna að einföldun á skattaumhverfi íslenskra almannaheillasamtaka og bættri skattalegri stöðu þeirra, til samræmis við stöðu sambærilegra félaga í nágrannalöndunum.

Lagaumhverfi: Stuðla að því að sett verði heildarlög um starfsemi frjálsra félagasamtaka og sjálfseignarstofnana, réttindi þeirra og skyldur og fá þannig fram skýrari réttarstöðu og traustara rekstrarumhverfi þessara aðila.

Almannatengsl: Skýra fyrir opinberum aðilum, sem og öllum almenningi, hlutverk almannaheillasamtaka og sjálfseignarstofnana og undirstrika gagnsemi þeirra fyrir íslenskt samfélag.

4. gr.

Aðilar að samtökunum geta orðið frjáls félagasamtök með almennan aðgang og lýðræðislega stjórnarhætti, sem skráð eru hjá Hagstofu Íslands, og á einhvern hátt er ætlað að vinna að heill ótiltekins fjölda manna án hagnaðarsjónarmiða þeirra sem reka og stýra félaginu, einnig sjálfseignarstofnanir, sem hafa samskonar markmið. Leggja verður aðildarumsókn, ásamt samþykktum umsóknarleitanda og skýrslu um starfsemi hans, fyrir stjórn Samtakanna almannaheill til samþykktar. Aðalfundur samtakanna skal staðfesta aðild. Brottrekstur samtaka ákveðst af stjórn og skal staðfestur á næsta aðalfundi.

Tillaga fyrir stofnfund

5. gr

Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum samtakanna. Skal hann haldinn árlega að vori. Aðildarsamtökin skulu kjósa til hans einn mann hvert. Aðildarsamtök skulu eiga rétt á viðbótarfulltrúa fyrir hverja fimmþúsund félagsmenn, sem greitt hafa félagsgjöld samkvæmt endurskoðuðum ársreikningum. Hver aðildarstofnun skal einnig velja einn aðalfulltrúa. Hafi aðildarstofnun félög að baki sér á stofnunin rétt á aukafulltrúum á sama hátt og aðildarsamtök.

6. gr.

Aðalfundur kýs 7 manna stjórn og aðra 7 til vara. Stjórnarmenn skulu að hámarki sitja þrjú kjörtímabil hver. Stjórn samtakanna skal fyrir aðalfund tilnefna þriggja manna uppstillingarnefnd. Hlutverk hennar er að gera tillögur um menn í stjórn. Hún skal hlutast til um að jafnræði ríki milli aðildarsamtakanna um setu í stjórn. Jafnframt að jafnrétti ríki milli kynja um stjórnarþátttöku svo og að sjá til þess að ekki gangi allir úr stjórn í einu.

7. gr.

Stjórnin skal senda aðildarfélögum árlega skýrslu um starfsemina ásamt ársreikningi þar sem fram komi að hverju var starfað og hvernig gekk að uppfylla væntingar starfsáætlunar.

8. gr.

Heimilt er að ákveða sérstakt árgjald aðildarfélaga fyrir almannaheillasamtökin, sem ákveðið skal á aðalfundi. Þá er samtökunum heimilt að afla styrktaraðila og jafnframt að taka við framlögum frá ríki og sveitarfélögum.

9. gr.

Fyrir aðalfund skal leggja starfsáætlun næsta árs. Þá skal leggja fyrir fundinn skýrslu stjórnar um hvernig tókst að framfylgja síðustu starfsáætlun, svo og ársreikning samtakanna endurskoðaðan og staðfestan af löggiltum endurskoðanda.

10. gr.

Aðalfund skal boða með bréfi, rafrænt eða í pósti, með hæfilegum fresti svo ráðrúm gefist til að ræða starfsemi samtakanna innan aðildarfélaganna. Í boði til aðalfundar skal greina dagskrá og umfjöllunarefni skal tilkynna í öðrum fundarboðum.

11. gr.

Dagskrá aðalfundar skal vera:

  • Kosning fundarstjóra, fundarritara.
  • Skýrsla stjórnar.
  • Skýrsla um endurskoðaðan fjárhag samtakanna.
  • Umræður um skýrslur.

Tillaga fyrir stofnfund

  • Kosning stjórnar og endurskoðenda.
  • Ákvörðun um gjaldskyldu aðildarfélaga.
  • Lagabreytingar.
  • Önnur mál.

12. gr.

Tillögur sem aðildarsamtök eða stofnanir hyggjast leggja fram á aðalfundi skulu hafa borist stjórn tveimur vikum fyrir fund og skulu sendar aðilum minnst viku fyrir fund.

13. gr

Stjórnin skal kalla til sérstaks aðalfundar annað hvort að eigin frumkvæði eða sé þess óskað af minnst ¼ stofnana og félaga að samtökunum. Boðað skal skriflega til fundarins með minnst tveggja vikna fyrirvara og halda hann síðast fjórum vikum eftir að krafa um það hefur borist stjórn. Í fundarboði skal getið hvert sé tilefni fundarins. Sérstakur aðalfundur skal hafa sama vald og venjulegur aðalfundur.

14. gr.

Formaður skal kjörinn sérstaklega á aðalfundi en að öðru leyti skiptir stjórnin sjálf með sér verkum. Hana skipa varaformaður, gjaldkeri, ritari og meðstjórnendur. Hún ber ábyrgð á störfum samtakanna. Hún getur skipað sérstakar nefndir til að sinna tilteknum málefnum og hún getur ráðið starfsfólk eftir því sem fjárhagur leyfir. Formaður og gjaldkeri skuldbinda samtökin í sameiningu, en í fjarveru annars þeirra kemur einhver stjórnarmanna í stað þess sem er fjarverandi.

Stjórnarfundir skulu færðir til bókar og skal bókunin vera aðgengileg aðilum að samtökunum.

15. gr.

Reikningsárið skal vera almanaksárið. Minnst mánuði fyrir aðalfund skal senda aðilum að samtökunum ársreikning yfirfarinn af kjörnum endurskoðendum svo og fjárhagsáætlun næstu ára. Aðalfundur skal velja einn utanaðkomandi löggiltan endurskoðanda fyrir hver tvö ár til að fara yfir bókhald félagsins.

16. gr.

Til að breyta samþykktum þessum þarf 2/3 fulltrúa á aðalfundi. Til þess að leggja samtökin niður þarf sama atkvæðafjölda. Séu samtökin lögð niður falla eignir þess til góðgerðarmála að ákvörðun aðalfundar.

Ákvæði til bráðabirgða.

Samþykktir þessar skulu gilda í þrjú ár, en að þeim liðnum, haldi samtökin áfram starfsemi sinni, skulu þær endurskoðaðar og breytt eftir því sem þurfa þykir frá sjónarhóli reynslunnar.



Toppmynd


Stjórnborð

Minnka letur Stækka letur Hamur fyrir sjónskerta